Lentir þú í slysi? 
Við könnum þinn rétt til bóta og sjáum um ferlið fyrir þig.

Við hjálpum þér að kanna þinn rétt til bóta

Lentir þú í slysi? Við könnum þinn rétt til bóta og sjáum um ferlið fyrir þig. Þótt ágreiningsefni á sviði bótaréttar geti verið flókin, má með góðu utanumhaldi tryggja að ferlið verði í grunninn fremur einfalt. Af hverju að flækja það?

bolli

Hluti af bataferlinu

Hluti af bataferlinu

Lentir þú í slysi? Eftir slys mæta fólki allskyns áskoranir, svo sem heilsufarslegar og fjárhagslegar. Okkar hlutverk er að létta þér byrðina með því að kanna þinn rétt til að fá tjónið þitt bætt og halda utan um það ferli allt fyrir þig, þannig þú getir einbeitt þér að öðru því sem skiptir máli.

bolli
Höfum þetta einfalt

Það kostar ekkert að athuga málið

Fyrsta viðtal þar sem færi gefst á að fara yfir slysið og kanna hvort grundvöllur sé til að aðhafast í þínu tilfelli er ávallt þér að kostnaðarlausu.

Að sama skapi er lögfræðiþóknun vegna bótamála bundin því skilyrði að þú fáir greiddar bætur. Greiðist engar bætur greiðir þú enga lögfræðiþóknun, nema ef þú ákveður að fara með mál þitt fyrir dómstóla, þá greiðist sérstaklega fyrir þann málarekstur.

Arnar
Arnar V. Arnarsson
Eigandi // Lögmaður
Með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómsstólum og mikla reynslu á rekstri einkamála, sérstaklega bótamála.
Elimar Hauksson
Elimar Hauksson
Eigandi // Lögmaður
Með málflutningsrétti fyrir héraðsdómsstólum og víðtæka reynslu á málflutningi og rekstri sakamála.
Um okkur

Bótamál.is er lögmannsstofa sem sérhæfir sig fyrst og fremst í rekstri bótamála af öllum toga. Stofan er starfandi á tveimur stöðum, með höfuðstöðvar í Reykjavík og útibú á Hvolsvelli, og er rekin af lögmönnunum Arnari Vilhjálmi Arnarssyni og Elimar Haukssyni. Stofan var formlega stofnuð árið 2022 en vefsíðan Bótamál.is var áður starfrækt í rekstri lögmannsstofunnar AVA Legal.

Markmið okkar er að bjóða framúrskarandi lögfræðiþjónustu til tjónþola og annarra sem bótarétt kunna að eiga með það að leiðarljósi að tjónþolar fái fullar bætur fyrir tjón sitt og lágmarki áhættu sína við að sækja þær. Við viljum að fólk sé óhrætt við að kanna rétt sinn hjá okkur án skuldbindinga. Því hvetjum við áhugasama til að nýta sér það að fyrsta viðtal sé ávallt þeim að kostnaðarlausu.

Vefsíða
Vefsíðan fær nýtt útlit
Vefsíðan fær nýtt útlit At vero eos et accusamus et iusto odio dignissimos ducimus qui blanditiis praesentium voluptatum deleniti atque corrupti quos dolores et quas molestias excepturi sint occaecati...
Aerial view of Black sand beach and ocean waves in Iceland
Nýr meðeigandi hjá BÓTAMÁL.IS
Blablablablablabla. Cras sagittis. Vivamus in erat urna cursus vestibulum. Vestibulum rutrum, mi nec elementum vehiculaid fringilla.Cras sagittis. Vivamus in erat urna cursus vestibulum. Vestibulum rutrum,...

Algengar spurningar

Hvert og eitt bótamál er einstakt. Þrátt fyrir það er ferlið almennt svipað.

Alla jafna er það á þann veg að fyrst er undirritað umboð og verkbeiðni og gengið frá tilkynningum um slysið til þeirra sem málið varðar. Því næst tekur við gagnaöflun. Ef ágreiningur er um bótaskyldu í málinu þarf að reyna að fá hana viðurkennda. Til þess eru sérstakar úrskurðarnefndir sem hægt er að bera slíkan ágreining undir.

Sé enn uppi ágreiningur að því úrræði tæmdu stendur tjónþolum til boða sá kostur að leita með mál sitt fyrir dómstóla. Sé bótaskylda viðurkennd er að lokinni gagnaöflun aflað matsgerðar, þar sem umfang tjónsins er staðreynt. Sé matsgerðin hagfelld er síðan hægt að krefjast fjárgreiðslu úr hendi bótaskylds aðila á grundvelli hennar. Virðist þetta of flókið? Höfum þetta einfalt, þú kemur til okkar og við sjáum um ferlið.

Það má vel vera! Slys eru jafn mismunandi og þau eru mörg og því gildir ekki eitt svar um öll bótamál. Komdu í frítt fyrsta viðtal og við könnum hvort þú eigir rétt á bótum.

Yfirleitt tekur eitt og hálft til þrjú ár að fá bætur. Bótamál geta tekið talsverðan tíma. Örorkumat vegna slyss fer í fyrsta lagi fram einu ári eftir slys, að því gefnu að gagnaöflun sé lokið og bótaskylda verið viðurkennd.

Séu niðurstöður matsgerðarinnar hagfelldar gæti bótamál í fljótasta lagi tekið um 14 til 18 mánuði. Yfirleitt taka bótamál hins vegar lengri tíma, þá á bilinu eitt og hálft til þrjú ár, en í sumum tilfellum jafnvel lengur, einkum þegar um sérstaklega umfangsmikið tjón er að ræða eða ef ágreiningur um bótaskyldu ratar fyrir dómstóla.

Almenna fyrningarreglan í íslenskum skaðabótarétti kveður á um að krafa um skaðabætur vegna líkamstjóns fyrnist á tíu árum frá þeim degi er tjónþoli fékk nauðsynlegar upplýsingar um tjónið og þann sem ábyrgð ber á því eða bar að afla sér slíkra upplýsinga.

Hins vegar gilda ýmsar sérreglur bæði um fyrningu og tilkynningarskyldu sem geta verið þrengri, til að mynda gildir almennt eins árs tilkynningafrestur um slys í tilfellum vátryggingasamninga.

Við mælum því eindregið með því að fólk leiti sér lögfræðiaðstoðar svo fljótt sem verða má eftir að slys skeður svo hægt sé að tryggja að engir frestir renni út og til að halda utan um og annast gagnaöflun.

Skrifstofan er staðsett í Lágmúla 7 (5. hæð), 108 Reykjavík. Gengið er inn um stigagang hjá sænska sendiráðinu, á milli Nettó og Joe & The Juice.

Hefur þú frekari spurningar? Hafðu þá endilega samband og við reynum að svara þeim fyrir þig. Það kostar ekkert að hafa samband.

Viltu kíkja í kaffi?

Mán - fös 9.00 - 17.00

Lágmúli 7 (5. hæð), 108 Reykjavík

+354 516 4000

botamal@botamal.is